4.NÞ
Skólinn
Kvennskælingablogg
18.10.2006 11:24:27 / Kristjan

Hvað er að Frétta

Helló helló... hvað er að frétta af ykkur öllum! hvað er fólk að gera annað en að tárast hvern morgun þegar það vaknar og fattar að það er ekki að fara i Kvennó...

hvernig væri svo að hafa eitt party bráðum öll saman þar sem allir verða fullir saman. ekkert rugl eins og að vera að skoða brúðarkjóla, ég er ólétt eða ég er að læra er að fara í próf... bara gott party!!! :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 00:02:48 / Halla

ÚTSKRIFT!

Vil bara þakka ykkur öllum fyrir samveruna á þessum fjórum árum elskurnar mínar!! Vil líka óska ykkur til hamingju með stúdentinn. Hlakka til að sjá ykkur á morgun, og VÁ hvað það verður gaman!!! Love you all!!

Útskriftarkveðja Halla :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 00:22:31 / 4nth

!!! Útskriftarefnablogg !!!

Útskriftarblogg 4. bekkinga : www.blog.central.is/kvenno2006

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 18:21:04 / Einar Gauti

Kæri herbergisfélagi

Ég er að leita eftir herbergisfélaga í Tyrklandi! Ég er alveg ágætis strákur skiljiði,  ég hrýt ekki og ég fer alltaf út ef ég þarf að prumpa. Vinsamlegast látið mig vita af ykkur í commentin.
ástarkveðjur,
einsigutt

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 10:15:53 / maríakr

stúdentshúfur???

hæhæ ég var nú bara að velta fyrir mér þessu með stúdentshúfurnar, veit einhver eitthvað um það mál. þurfum við að panta þær eitthvað sérstaklega eða var hausamælingin bara pöntunin, og ef svo hvert eigum við þá að sækja þær, og hvernig vitum við að þær séu tilbúnar??? endilega segjiði mér ef þið hafið einhverja hugmynd... María Kr

» 11 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 15:43:11 / Halla

Dimmidimmidimmisjón!!!!

jæja elskurnar mínar...ég fór áðan og keypti nammi (og vegjaraklukku) fyrir þann pening sem búið var að leggja inn á mig....en það voru því miður ekki allir búnir að leggja þetta inn. Ég held að málið sé bara að þeir sem ekki voru búnir að borga fari bara sjálfir og kaupi eitthvað smotterí, því annars er of lítið nammi á mann, ef við bara skiptum þessu á milli okkar sem ég keypti  :)

Sem sagt, þeir sem ekki voru búnir að borga (Arna, María, Auður, Hrönn, Birna og  Svanhildur) komiði með meira nammi á morgun, annars fáið þið bara ekki að henda neinu nammi...skamm!! hehe, ein ótrúlega ströng ;)

En allavega... Himmi klárar að mixa lögin í dag, það er búið að kaupa nammi og gjafir, vonandi eru allir búnir að sækja búningana sína (og muna eftir auka batteríum) og kaupa áfengi þeir sem ætla að gera það! Og svo er það bara að mæta á slaginu 8.00 til Auðar í fyrramálið!!!! Ég og Dagný mætum aðeins fyrr og kíkjum yfir "danssporin" og síðan höfum við svona netta æfingu þegar  við erum komin í búningana :D Hljómar þetta ekki bara rosalega vel?? Það finnst mér....allt nokkurnveginn komið á hreint og svona...vei!

Hlakka bara rosalega til að sjá ykkur snúllurnar mínar og mér þykir alveg ótrúlega vænt um ykkur öll (varð bara að fá að koma því að) :*

Sjáumst bastarðar ;)

Halla!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 10:11:35 / Svanhildur

DIMMISION

Allir að leggja 300 krónur inn á Höllu M fyrir gjöf og nammi Í DAG!!!!

Reikningsnúmer 513-26-9982

Kt: 170387-2879


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 15:18:58 / Arna

Greiðsla útskriftarferðarinnar!!!

hæhæ Eins og þið hafið heyrt þá mun útskrifrarferðin hækka um einhverja ákveðna upphæð 2maí útaf gengisveseni. Við höfðum heyrt að margir ætluðu að fara á mánudaginn, 1maí, og borga því maður verður náttúrulega helst að borga fyrir 2maí því einhverjir hafa talað um að þetta séu 7500kr. En vandamálið er að það verður lokað hjá Úrval-Útsýn á mánudaginn svo þeir sem ætla að sleppa við þessa álagningu verða að borga fyrir helgi. Vildum bara láta fólk vita sem ætlaði að borga 1maí kv. Útskriftarferðanefnd

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 21:52:40 / Kristjan

Útskriftarferð okkar til Tyrklands

Þeir sem ætla í útskriftarferðina þurfa að vera búnir að borga fyrir helgi, eftir helgi mun ferðin hækka um 12 % sem er um 7500 krónur vegna verðbólgunnar. Það er opið til klukkan 5 á úrval útsýn á föstudaginn, ekki er hægt að gera þetta í gegnum netið, annað hvort þarf að fara upp eftir eða greiða þetta í gegnum síma.

tekið af 4-NS en takk takk kæri 4-NS sem góður en ekki bestur því að það er 4-NÞ

wuuu....


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 17:31:21 / Svanhildur

Lilja kemur!

jæja... fékk svar frá henni Lilju yndi í morgun... mwah... krakkar... við höfum verið með svo brill kennara held að það verði ekkert deilt um það...:haha: En hérna kemur svarið sem ég fékk frá Lilju í morgun....

Þakka ykkur kærlega fyrir.  Hvenær á ég að mæta??  Hlakka mikið til að hitta ykkur þið voruð svo frábær og ekki síst tókst ferðin okkar til Berlínar vel, enda hafa aðrir skólar nú fetað í ykkar fótspor

Svo eiga ennþá einhverjir eftir að borga og endilega bara að drífa í því sem fyrst svo við getum keypt eitthvað ótrúlega flott fyrir þau...:haha: Reikningsnúmerið og kennitalan er í færslunni fyrir neðan...;)

.

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 16:55:09 / Svanhildur

Dimmsion

jæja dúllurnar mínar... það er búið að senda tölvupóst á bæði Odd og Lilju og Oddur yndislegi svaraði í morgun

Kærar þakkir fyrir gott boð. Ég kem á föstudaginn. Skilið frá mér bestu kveðjum til bekkjarins. Það hefur verið mjög ánægjulegt að vinna með ykkur.:) Verst fyrir mig að missa af því að sjá ykkur blómsta sl. ár. Hlakka til að sjá ykkur.
 
Með bestu kveðjum.
Oddur
þá er það bara Lilja sem á eftir að svara... en Marín fór í gær og keypti eitthvað af gjöfum fyrir peninginn sem kominn er en ennþá eiga nokkuð margir eftir að borga.... þeir sem búnir eru að borga eru--> Arndís, Birna, Dagný, Halla, Hrefna, Iðunn, Marín Ósk, Svanhildur og Vignir
Þið hin sem eigið eftir að borga verðið að koma 1000 kallinum sem fyrst til mín eða Marínar og hægt er að millifæra inn á mig
Kt:120386-3289
Reikningsnr: 0113-05-063922

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 18:39:45 / Halla

Dimmisjón-kvöldið :)

Jæja, þá er komið að skuldardögum fyrir dimmisjón-kvöldið!! Tekið verður við greiðslum í matsalnum í hádeginu á mánudag og þriðjudag. Einungis er tekið við peningum og er þriðjudagshádegið ALLRA seinasti séns!!!!!! Uppsett verð er 3.500 kr. en innifalið í því er 3 rétta máltíð, 3 bjórar og einnig maturinn fyrir kennarana, en við bjóðum þeim!! :) Um kvöldið mun svo Alexander Idol stjarna troða upp ásamt DJ Eyþóri sem hefur verið að spila mikið á Kofanum!!

Hver bekkur er beðinn um að vera með eitt skemmtiatriði og verða veitt verðlaun fyrir flottasta atriðið!! :) Reynum því öll að vera virk og gerum þetta kvöld jafn frábært og peysufatakvöldið okkar forðum!! :)

Einnig vil ég vekja athygli á hópmyndartöku fyrir árbókina sem verður fyrir utan aðalbygginguna á fimmtudaginn nk. kl. 12!! (ég er búin að láta kennarana vita). ALLIR AÐ MÆTA FÍNIR - ÞETTA ER NÚ SEINASTI SKÓLADAGURINN OKKAR!! Þá er ég að tala um jakkaföt strákar!! :)

Tekið af keðjunni!


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 17:37:30 / 4nth

Búningar

Bún/n að ná þér í Fat Bastard búninginn???

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 11:37:22 / 4nth

Hey you little fat bastards!!!


Jæja krakkar!! Takk fyrir hörku fund í dag! Allt er að komast á hreint hjá okkur en alltaf má bæta við fleiri hugmyndum! Þá sérstaklega að gjöfum!

Ég ætlaði nú einungis að kæta ykkur svona í lok vetrar með því að segja frá því að búningarnir okkar eru komnir!!! :D Þeir voru greynilega svona hræddir við mið litlu greyin að þeir skuttluðust bara með þetta útá völl í gærkvöldi og þetta flaug til landsins í nótt :haha: :klikk: En þá standa málin þannig:

Hvert og eitt ykkar getur farið nú í verslunina Hókus Pókus Laugavegi 69 og náð í búningana ykkar! Þið segist bara vera að koma frá Kvenno og ná í Fat Bastard búning og borgið restina af gjaldinu! Ég náði að koma honum niður í 7500 á hvern búning sem ég verð að segja að er bara mjög vel sloppið miðað við þetta unit sem þessi búningur er!! Er búinn að prófa þetta ferliki og það er sér dæla sem heldur okkur feitum!! Las utan á hann og þar stendur "Fits MOST adulds" það var nú reyndar ekki nefnt þegar þeir voru panntaðir en vonum bara að þið litlu dúllurnar eins og Mæja og Birna plömmið ykkur vel í þessu ;) :D Endilega náið í þetta sem first til að koma þessu öllu á hreint og geta pælt í hvað þið viljið gera á meðan þið eruð í þessum græjum. Kristján, það er hægt að geyma nó af bjór inni í þessu!! ;)



Svo er það bara að borga svanhildi 1000 kjeeellinn fyrir smotteríinu og þá förum við bara að verða good to go party'ing!!!! 8)

Þakka ykkur svo bara kærlega fyrir veturinn elskurnar mínar og vona ég að sumarið mundi bera ást, gleði og umhyggju í skauti sér!!!



» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 19:47:49 / Svanhildur

MYNDATAKA Á FÖSTUDAGINN!!!!

Jæja krúttin mín þá er loksins að komast mynd á þetta hjá okkur...:D

Við reiknum með að þetta komi til með að kosta 1000 krónur á mann og annað hvort getið þið komið peningunum beint til mín eða Marínar eða þá að þið getið lagt inn á mig

Kt: 120386-3289

Reikningsnr: 0113-05-063922

og munið svo að skrifa nafnið ykkar í athugasemd svo ég viti hver er að borga...;)

svo að lokum

MYNDATAKA Á FÖSTUDAGINN EFTIR EFNAFRÆÐI!!!!

ef þið mætið ekki verðið þið ekki með á myndinni... svo einfalt er það.... þannig mætið hress og sæt í efnafræði á föstudagsmorgun svo að kennarnir og Villa&co á skrifstofunni geti dáðst að myndinni af okkur um ókomin ár..;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8